魔镜歌词网
魔镜歌词网 > 欧美歌手 > Skálmöld > Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands > Dauði

Skálmöld



歌词
专辑列表

Skálmöld

Dauði

Ligg ég, leka mín sár,
loppinn kólnar minn nár.
Dauðinn dregur mig nær,
dettur yfir mig snær.

Lið mitt liggur hjá mér,
látin hersingin er.
Hetjur höfðu það af,
hefndin frið okkur gaf.

Hinsta dreg ég andardráttinn,
drengur Óðins missir máttinn.
Sortinn teygir sína arma,
sól úr austri kastar bjarma.
Loksins reiði lægja öldur,
laskað sverð og brotinn skjöldur.
Bros á varir Baldurs færist,
bræðralagið aldrei tærist.

Vígamaður Baldur Óðinsson!
更多更详尽歌词 在 ※ Mojim.com 魔镜歌词网

Gunnar jarl og Grímur deyja,
guðirnir þá munu heygja.
Vargurinn í valinn beygður,
verður seint af nokkrum heygður.
Brosi nú til barna minna,
brátt mun öllum sorgum linna.
Kæra sé ég konu mína
kúra upp við syni sína.

Nú er ekki neinn sem lifir,
nóttin hellist kolsvört yfir.
Líf í Baldurs auga blikar,
bíður dauðinn, aðeins hikar.
Upp er runnin stóra stundin,
stöðvast allt við hinsta blundinn.
Blæs úr norðri, bærast stráin,
Baldur er nú loksins dáinn!.